Skilmálar

Viðskiptaskilmálar – Armor Vision

Seljandi er Race ehf, kt. 6604100740, Arnarheiði 4, 810  Hveragerði,  armorvision@armorvision.is

Race áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru:

Allar pantanir eru afgreiddar á 0-3 virkum dögum eftir að pöntun berst nema að annað sé tekið fram. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp réttar upplýsingar við pöntun.

Verð á vöru og sendingakostnaður.
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Vara er ávallt send á ábyrgð og kostnað kaupanda. 

Að skipta og skila vöru
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru þá getur hann fengið endurgreiðslu og þá verður endurgreiðslan framkvæmd á sama formi og upphafleg greiðsla viðskiptavinar var framkvæmd á. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd og kostnaður vegna endursendingar fellur á kaupanda.

Persónuvernd

Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um.

Lög og varnarþing.
Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa. Rísi ágreiningur milli aðila skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir kærunefnd þjónustu- og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Síðast uppfært: January 11, 2025