Að skipta og skila vöru

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. 

Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru þá getur hann fengið endurgreiðslu og þá verður endurgreiðslan framkvæmd á sama formi og upphafleg greiðsla viðskiptavinar var framkvæmd á. 

Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd og kostnaður vegna endursendingar fellur á kaupanda.